Welkomin í Kartöflugeymsluna
Kartöflugeymslan, The Potato Storage, er lítið fjölskyldurekið gistiheimili í Löngutorfu sem er í Svínafelli í Öræfum. Í húsinu eru 5 íbúðir til útleigu, fjórar 22 fm stúdíóíbúðir og ein 35 fm íbúð með svefnherbergi og svefnsófa í stofu. Hver íbúð er með sérinngangi, eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Hægt er að fá aukabedda eða barnarúm ef ferðast er með barn.
Reykingar eru bannaðar í íbúðunum. Brot á því banni getur leitt til rukkunar þrifagjalds sem samsvarar allt að þriggja nátta leigu. |
Þú finnur okkur hér!
Í nágrenninu
Kartöflugeymslan er í Löngutorfu í Svínafelli í Öræfum. Afleggjarinn að húsinu er vestan við móttökuna á tjaldsvæðinu í Svínafelli. Það er gott útsýni yfir Skeiðarárjökul og Skaftafellsfjöll til vesturs og oft einstaklega falleg sólsetur. Það er um 45 - 55 km. akstur að Fjallsárlóni og Jökulsárlóni þar sem eru bátasiglingar á sumrin. Skipulagðar ferðir eru út í Ingólfshöfða á sumrin. Skaftafell er í um 8 km fjarlægð, þar eru merktar gönguleiðir um stórbrotið landslag. Margir aðilar bjóða upp á jöklagöngur o.þ.h.
svipmyndir úr öræfum og nágrenni
Kartöflugeymslan
Copyright © 2019