Aðstaða
Íbúðin er með sérinngang. Í henni er eitt svefnherbergi, svefnsófi í stofu, fullbúið eldhús og baðherbergi með sturtu. Stórir suðurgluggar og frábært útsýni.
|
Lýsing á aðbúnaði í íbúðinni:
- Svefnherbergi: tvö 90cm breið rúm, auðvelt að færa í sundur, náttborð og lesljós við rúm, tvær rúmfatakistur sem er hægt að leggja töskur ofan á, myrkvunargluggatjöld. Rúmin eru uppábúin
- Aukabúnaður ef óskað er eftir: ferðabarnarúm (að 13 kg.) samanbrjótanlegt aukarúm (takmarkað framboð). Barnastóll og baðbali.
- Stofa/eldhús: Svefnsófi (stærð dýnu 140 x200 cm), eldhúsborð og fjórir stólar, hægindastóll, fjórir klappstólar, töskuberi, ryksuga
- Eldhús: Ísskápur með frystihólfi, spanhelluborð, ofn, örbylgjuofn, uppþvottavél, brauðrist, vatnshitari, kaffivél, pressukanna, kaffi, te, borðbúnaður og hnífapör fyrir 8 manns, pottar, panna, eldföst mót, salt, pipar, matarolía, krydd, sykur, mjólkurduft í kaffið
- Baðherbergi: sturta, sturtusápa, handklæði, hárblásari, handsápa, salernispappír
- Íbúðirnar eru reyklausar: Verði gestir uppvísir að reykingum í íbúðunum geta þeir búist við að greiða sérstakt þrifagjald og verða vísað burt tafarlaust þó dvölinni sé ekki lokið
Myndir
Verið velkomin!
Kartöflugeymslan
Copyright 2019