um okkur
Fjölskyldan flutti í Öræfin árið 2007 til að vinna í Vatnajökulsþjóðgarði og við bjuggum í Skaftafelli í ellefu ár. Við viljum hvergi annarsstaðar vera en í Öræfum og þegar okkur bauðst að kaupa smá landskika með útihúsum þá sáum við tækifæri til að búa hér á okkar eigin forsendum. Síðustu tvö árin höfum við unnið að því að breyta gamalli kartöflugeymslu í gistiheimili. Við höfum unnið mikið í þessu sjálf því okkur finnst gaman að sjá hugmyndir okkar verða að veruleika. Þegar við ferðumst, þá dveljum við gjarnan á sama stað í nokkrar nætur til að kynnast svæðinu í kringum okkur betur. Við viljum hafa möguleika á að taka góðan tíma í morgunmat og njóta þess að slappa af. Íbúðirnar endurspegla því að vissu leyti okkar sýn á hið fullkomna frí og við vonum að gestum okkar muni líka dvölin.
rEGÍNA, sTYRMIR & kLAUS
Kartöflugeymslan
Copyright 2019